04:49:00

Hraundrangar í Heiðmörk
Það er/u 1 gestur inni
Bjarkarblóm
Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Elva   
Mánudagur, 12 Júlí 2010 11:19

Í vor tókum við þátt í brúðarsýningu Smáralindar og sýndum þar brúðarvendi unna af skreytum Bjarkarblóms ásamt ýmsu fallegu skreytingarefni fyrir veisluna m.a. kerti servíettur,borðskraut ofl.

Glæsilegur kúluvöndur með slóðaRómantískur hjartalaga vöndurGlæsilegur vöndur í grænum tónumGlæsilegur vöndur með flammingó blóminu í grænu og hvítuVöndur sem undirstrikar vel línur kjólsins Einfaldur og smart gerberuvöndurRómantískur,villtur og sæturHeitur og villtur með orange,rósum og hypericum berjumGlæsilegur vöndur með hvítum blómum og grænuElva og Brynja í básnum okkar að veita faglega ráðgjöf

 

LAST_UPDATED2
 
Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Elva   
Fimmtudagur, 08 Júlí 2010 21:17
celebrate1.pngspirit-of-giving1.pngangel-of-the-garden1.pnglove-of-learning1.pngÍ Bjarkarblómi fást Willowtree stytturnar sem hannaðar eru af Susan Lordy. Hver og ein á sér nafn sem túlkar einhverja tilfinningu eins og þakklæti,ást,ummhyggju osfrv.Takmark listakonunnar er að sem flestir geti fundið gjöf sem hentar þeirra tilefni.
LAST_UPDATED2
 
Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 26 Janúar 2009 13:40

blm 450.jpgblm 451.jpg

Bros passar alltaf inn í tilveruna enda hafa Bjartsýnisblómin okkar vakið verðskuldaða athygli og fengið mörg brosin til baka.

 
Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 09 September 2008 18:16

Nú er tími haustblómanna og þá þurfa allir að fá sér Ericu hvort sem er inni eða úti. Erican þarf góða vökvun og úðun sérstaklega þegar hún er höfð inni. Þegar hún fer að þorna nota margir það ráð að spreyja hana með elefant spreyji eða hárlakki til að það hrinji síður af henni blómin.

 Svo er líka tilvalið að fá sér flottan haustkrans í andyrið til að lífga upp á þegar sumarblómin hafa sölnað.

LAST_UPDATED2
 
Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Administrator   
Laugardagur, 23 Ágúst 2008 15:26

Fagleg og persónuleg þjónusta í blómaskreytingum við öll tækifæri ásamt spennandi framboði á vandaðri gjafavöru setja svip sinn á blómasmiðjuna Bjarkarblóm sem opnuð var laugardaginn 16. ágúst s.l. Eigandi er Elva Björk Jónatansdóttir, sem er lærður blómaskreytir og hefur unnið í faginu s.l. 10 ár, m.a. sem verslunarstjóri í Blómastofu Friðfinns á Suðurlandsbraut. Elva er jafnframt kennari að mennt og stendur fyrir námskeiðum og býður upp á sýnikennslu við ýmis tækifæri.
Þess ber jafnframt að geta að lögð er sérstök áhersla á samúðarvörur og samúðarskreytingar.

Þema Bjarkarblóma er íslensk náttúra og list og á haustmánuðum eru það verk listakvennanna Geggu – Helgu Birgisdóttur og Auðar Gunnarsdóttur sem prýða rýmið ásamt krönsum og skreytingum í íslensku haustlitunum. Af innfluttum gjafavörum má nefna merki á borð við Cult, Bröste og Sia auk þess sem Willow tree englar eru væntanlegir í lok mánaðar.

Í Bjarkarblómi er starfrækt öflug fyrirtækjaþjónusta, alhliða skreytingar til daglegra nota eða við sérstök tækifæri, s.s. vegna viðburða fyrir viðskiptavini eða starfsfólk; kynningar, árshátíðir o.s.frv. Jafnframt er boðið upp skemmtilega nýjung þar sem haldið er utan um afmælisdaga starfsmanna fyrirtækisins og séð um að senda blómvönd eða fallega gjöf frá fyrirtækinu í tilefni dagsins. Þegar líður að jólum verður einnig í boði að setja saman fallegar og listrænar jólagjafir til starfsmanna fyrirtækja.

Verslunin Bjarkarblóm er staðsett í rými Hagkaupa í Smáralind og er opin sem hér segir:
Virka daga frá kl. 10.00 – 20.00 og til 21.00 á fimmtudögum,
laugardaga frá kl. 10-20 og sunnudaga frá kl. 12.00 – 20.00. 

Heimasíða blómasmiðjunnar, www.bjarkarblom.is, verður opnuð innan skamms og verður hægt að velja og panta skreytingar við ýmis tilefni á vefnum.

Bjarkarblóm
Elva Björk Jónatansdóttir
Smáralind
Hagasmára 1, 201 Kópavogi
Veffang: www.bjarkarblom.is
Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Sími: 578 5075 - 5785076

LAST_UPDATED2
 
mod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_counter