|
Nú er tími haustblómanna og þá þurfa allir að fá sér Ericu hvort sem er inni eða úti. Erican þarf góða vökvun og úðun sérstaklega þegar hún er höfð inni. Þegar hún fer að þorna nota margir það ráð að spreyja hana með elefant spreyji eða hárlakki til að það hrinji síður af henni blómin.
Svo er líka tilvalið að fá sér flottan haustkrans í andyrið til að lífga upp á þegar sumarblómin hafa sölnað. |
|
|
Lucky bamboo er skemmtileg planta sem lifir vel í vatni. Kínverjar trúa því að hún færi hamingju inn á heimili og er þess vegna tilvalin húsgjöf.
Lucky bamboo er auðveldur í umhirðu.
- Skipta á vatni einu sinni í viku.
- Smá áburður af og til en passa að setja ekki of mikið, því það brennir ræturnar.
|
|
Orkideur eru falleg og stílhrein blóm. Þau eru frekar auðveld í umhirðu og blómstra á hverju ári ef vel er hugsað um þau.
|
|
|
|
|
|
|