Fróðleikur Menu

Fróðleikur
Haustblóm og skreytingar

Nú er tími haustblómanna og þá þurfa allir að fá sér Ericu hvort sem er inni eða úti. Erican þarf góða vökvun og úðun sérstaklega þegar hún er höfð inni. Þegar hún fer að þorna nota margir það ráð að spreyja hana með elefant spreyji eða hárlakki til að það hrinji síður af henni blómin.

 Svo er líka tilvalið að fá sér flottan haustkrans í andyrið til að lífga upp á þegar sumarblómin hafa sölnað.

 
Lucky bamboo

Skreyttur bamboo í vasaLucky bamboo er skemmtileg planta sem lifir vel í vatni. Kínverjar trúa því að hún færi hamingju inn á heimili og er þess vegna tilvalin húsgjöf.

Lucky bamboo er auðveldur í umhirðu.

  • Skipta á vatni einu sinni í viku.
  • Smá áburður af og til en passa að setja ekki of mikið, því það brennir ræturnar.

 

 
Orkideur

Falleg Orkidea í glærum pottiOrkideur eru falleg og stílhrein blóm. Þau eru frekar auðveld í umhirðu og blómstra á hverju ári ef vel er hugsað um þau.

  • Þau þurfa góða vökvun ca. einu sinni í viku.
  • Góða birtu en ekki beina sól.
 
Afskorin blóm

Meðhöndlun

  • Setjið vatn í vasa með þar til gerðum áburði
    Skáskerið blómin með beittum hníf. Sárið má ekki vera orðið þurrt þegar blómin fara í vatnið því það lokar fyrir vatnsinntakið.
  • Setjið blómin í vatnið og passið að engin laufblöð fari í vatnið.
  • Afskorin blóm þola ekki að standa í sól eða þar sem trekkur er.
 


mod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_countermod_vvisit_counter