| Bjarkarblóm opnar í Smáralind! |
|
Fagleg og persónuleg þjónusta í blómaskreytingum við öll tækifæri ásamt spennandi framboði á vandaðri gjafavöru setja svip sinn á blómasmiðjuna Bjarkarblóm sem opnuð var laugardaginn 16. ágúst s.l. Eigandi er Elva Björk Jónatansdóttir, sem er lærður blómaskreytir og hefur unnið í faginu s.l. 10 ár, m.a. sem verslunarstjóri í Blómastofu Friðfinns á Suðurlandsbraut. Elva er jafnframt kennari að mennt og stendur fyrir námskeiðum og býður upp á sýnikennslu við ýmis tækifæri. Þema Bjarkarblóma er íslensk náttúra og list og á haustmánuðum eru það verk listakvennanna Geggu – Helgu Birgisdóttur og Auðar Gunnarsdóttur sem prýða rýmið ásamt krönsum og skreytingum í íslensku haustlitunum. Af innfluttum gjafavörum má nefna merki á borð við Cult, Bröste og Sia auk þess sem Willow tree englar eru væntanlegir í lok mánaðar. Í Bjarkarblómi er starfrækt öflug fyrirtækjaþjónusta, alhliða skreytingar til daglegra nota eða við sérstök tækifæri, s.s. vegna viðburða fyrir viðskiptavini eða starfsfólk; kynningar, árshátíðir o.s.frv. Jafnframt er boðið upp skemmtilega nýjung þar sem haldið er utan um afmælisdaga starfsmanna fyrirtækisins og séð um að senda blómvönd eða fallega gjöf frá fyrirtækinu í tilefni dagsins. Þegar líður að jólum verður einnig í boði að setja saman fallegar og listrænar jólagjafir til starfsmanna fyrirtækja. Verslunin Bjarkarblóm er staðsett í rými Hagkaupa í Smáralind og er opin sem hér segir: Heimasíða blómasmiðjunnar, www.bjarkarblom.is, verður opnuð innan skamms og verður hægt að velja og panta skreytingar við ýmis tilefni á vefnum. Bjarkarblóm |




